NETÖRYGGI FYRIR FYRIRTÆKI
Öryggi sem ver fyrirtækið allan sólarhringinn
VHE sameinar eftirlit, varnir og viðbrögð í eina heildstæða öryggisþjónustu. Við fylgjumst með notendum, tækjum, tölvupósti og kerfum, greinum ógnir og bregðumst hratt við þegar eitthvað óvenjulegt gerist..

Öryggi á öllum helstu snertiflötum
VHE sameinar eftirlit, varnir og viðbrögð fyrir notendur, tæki, tölvupóst og Microsoft 365. Markmiðið er að greina ógnir fyrr og bregðast hraðar við þegar eitthvað óvenjulegt gerist.
SIEM og öryggiseftirlit
Kaseya SIEM safnar og greinir öryggisatburði úr kerfum fyrirtækisins svo grunsamleg hegðun sjáist fyrr.
Microsoft 365 vöktun
Kaseya SaaS Alerts fylgist með innskráningum, notendum og breytingum í Microsoft 365 og varar við óvenjulegri virkni.
Varnir á endabúnaði
Datto EDR greinir og stöðvar ógnir á tölvum og netþjónum áður en þær ná að dreifa sér.
MDR og viðbrögð
Kaseya MDR sameinar sjálfvirkt eftirlit og sérfræðinga sem greina atvik og aðstoða við viðbrögð allan sólarhringinn.
Tölvupóstsvörn
INKY greinir phishing, svik og hættuleg skilaboð áður en þau ná til notenda.
Veikleikaprófanir
Vonahi og RapidFire Tools hjálpa okkur að finna veikleika, rangar stillingar og áhættu áður en árásaraðilar gera það.

VÖKTUN OG VIÐBRÖGÐ
Við fylgjumst með ógnunum allan sólarhringinn
Góður tölvurekstur snýst ekki bara um að laga vandamál þegar þau koma upp. VHE fylgist með tölvum, netþjónum og lykilkerfum, sér um uppfærslur og bregst við viðvörunum áður en þær verða að rekstrarstoppi.
- SIEM og miðlæg greining öryggisatburða
- EDR á tölvum og netþjónum
- MDR og sérfræðivöktun allan sólarhringinn
- Vöktun Microsoft 365 og auðkenna
- Viðbrögð, rannsókn og ráðgjöf við atvik
Af hverju netöryggi með VHE?
Við hjálpum fyrirtækjum að verjast ógnum, bregðast hratt við atvikum og byggja upp öruggara rekstrarumhverfi fyrir notendur, tæki og gögn.
Fyrirbyggjandi vernd
Við greinum veikleika áður en þeir verða að vandamáli og setjum upp öryggislausnir sem draga úr áhættu í daglegum rekstri.
Vöktun og viðbragð
Við fylgjumst með atvikum, viðvörunum og grunsamlegri virkni svo hægt sé að bregðast hratt við áður en tjón verður meira.
Öryggi notenda og pósts
Við verjum notendur með auknu innskráningaröryggi, póstvörnum og fræðslu sem dregur úr hættu á svikum, vefveiðum og misnotkun aðganga.
Greining og ráðgjöf
Við nýtum öryggisgreiningu, veikleikaprófanir og sérfræðiráðgjöf til að styrkja varnir fyrirtækisins og styðja við réttar ákvarðanir.
Viltu styrkja netöryggi fyrirtækisins?
Segðu okkur frá umhverfinu og helstu áskorunum. Við förum yfir stöðuna, metum áhættu og finnum lausnir sem bæta varnir, yfirsýn og viðbragðsgetu fyrirtækisins.
Segðu okkur frá þörfunum og við förum yfir hvernig PCS getur aðstoðað.