TÖLVUÞJÓNUSTA FYRIR FYRIRTÆKI
Tölvuþjónusta sem heldur rekstrinum gangandi
VHE sér um daglegan tölvurekstur, notendaaðstoð, eftirlit og viðhald tölvukerfa. Við fylgjumst með tækninni, bregðumst hratt við vandamálum og hjálpum starfsfólkinu þegar þess þarf.

Allt fyrir stöðugan tölvurekstur á einum stað
VHE sér um daglegan rekstur, eftirlit og aðstoð við tölvukerfi fyrirtækisins. Við fylgjumst með kerfunum, höldum þeim uppfærðum og bregðumst hratt við þegar eitthvað kemur upp.
Notendaaðstoð
Fljót og persónuleg aðstoð við starfsfólk þegar vandamál koma upp með tölvur, forrit, aðgang eða búnað.
Tölvur og tæki
Uppsetning, viðhald og umsýsla tölva og annarra tækja frá afhendingu til endurnýjunar.
Eftirlit og viðhald
Við fylgjumst með stöðu tölva og kerfa, uppfærslum og heilsu búnaðar áður en smávandamál verða stór.
Datto RMM
Miðlægt eftirlit, sjálfvirkar uppfærslur, viðvaranir og fjarþjónusta fyrir tölvur og netþjóna.
IT Glue
Skjalfesting kerfa, tækja, aðganga og uppsetninga svo mikilvægar rekstrarupplýsingar séu alltaf aðgengilegar.
Rekstraryfirsýn
Sameinuð yfirsýn yfir búnað, viðvaranir og stöðu kerfa hjálpar okkur að greina vandamál fyrr og bregðast hraðar við.

FYRIRBYGGJANDI TÖLVUREKSTUR
Við fylgjumst með kerfunum áður en eitthvað bilar
Góður tölvurekstur snýst ekki bara um að laga vandamál þegar þau koma upp. VHE fylgist með tölvum, netþjónum og lykilkerfum, sér um uppfærslur og bregst við viðvörunum áður en þær verða að rekstrarstoppi.
- Eftirlit með tölvum og netþjónum
- Sjálfvirkar uppfærslur og patching
- Viðvaranir og fyrirbyggjandi viðhald
- Fjarþjónusta og skjót viðbrögð
Af hverju tölvuþjónusta með VHE?
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, skjót viðbrögð og fyrirbyggjandi rekstur svo tæknin trufli sem minnst daglega starfsemi.
Persónuleg þjónusta
Þú færð aðgang að fólki sem þekkir fyrirtækið, kerfin og starfsfólkið – ekki bara almennu þjónustuborði.
Skjót viðbrögð
Fjarþjónusta og góð yfirsýn gera okkur kleift að greina vandamál hratt og koma starfsfólkinu aftur af stað.
Fyrirbyggjandi rekstu
Við fylgjumst með kerfunum, uppfærslum og viðvörunum og reynum að leysa vandamál áður en þau valda rekstrarstoppi..
Skýr skjalfesting
Kerfi, búnaður og mikilvægar rekstrarupplýsingar eru skjalfestar svo þjónustan sé skilvirk og reksturinn ekki háður einum einstaklingi.
Vantar fyrirtækið þitt áreiðanlega tölvuþjónustu?
Segðu okkur frá rekstrinum og þörfunum. Við förum yfir hvernig VHE getur einfaldað tölvureksturinn, bætt yfirsýn og tryggt skjótari aðstoð.
Segðu okkur frá þörfunum og við förum yfir hvernig PCS getur aðstoðað.