PCS BACKUP FYRIR WORDPRESS

WordPress-afrit sem þú veist að virka.

PCS Backup tekur sjálfvirk afrit af WordPress-vefnum, vistar þau í SharePoint hjá þínu fyrirtæki og fylgist með að afritunin takist. Ef eitthvað fer úrskeiðis er einfalt að endurheimta gagnagrunn, skrár eða allan vefinn

Afritun, vöktun og endurheimt á einum stað

PCS Backup sér um WordPress gagnagrunninn og wp-content, vistar afritin utan vefþjónsins og fylgist með stöðunni svo vandamál komi í ljós áður en þeirra er þörf.

Sjálfvirk WordPress-afrit

PCS Backup tekur regluleg afrit af WordPress-vefnum án þess að þú þurfir að muna eftir því.

Gagnagrunnur og wp-content

Afrit eru tekin af bæði gagnagrunni og mikilvægum WordPress-skrám svo hægt sé að endurheimta vefinn heildstætt.

Afrit í þínu SharePoint

Afritin eru vistuð í Microsoft 365 / SharePoint hjá þínu fyrirtæki og haldast því undir þinni stjórn.

Vöktun afrita

PCS fylgist með hvort afritun hafi tekist og vandamál koma í ljós áður en þeirra verður vart..

Örugg endurheimt

Endurheimtu gagnagrunn, wp-content eða allan WordPress-vefinn þegar þörf krefur.

Öryggisafrit fyrir endurheimt

Áður en endurheimt hefst er tekið nýtt öryggisafrit svo alltaf sé hægt að fara til baka ef eitthvað óvænt gerist.

ÖRUGG ENDURHEIMT

Endurheimtu gagnagrunn, skrár eða allan WordPress-vefinn

Afrit hefur lítið gildi nema hægt sé að treysta því þegar vandamál koma upp. PCS Backup sannreynir afrit áður en endurheimt hefst og tekur nýtt öryggisafrit af núverandi stöðu svo hægt sé að fara til baka ef eitthvað óvænt gerist.

  • Endurheimt á gagnagrunni eingöngu
  • Endurheimt á wp-content og WordPress-skrám
  • Full endurheimt á öllum vefnum
  • Staðfesting á afriti áður en endurheimt hefst
  • Nýtt öryggisafrit tekið sjálfkrafa fyrir endurheimt
  • Stýrt ferli sem dregur úr hættu á frekara gagnatapi

 

Af hverju PCS WP Backup?

Ekki bara afrit — heldur vöktuð lausn með afritunum í þínu eigin Microsoft 365 umhverfi og verkfærum til öruggrar endurheimtar.

Afrit sem er fylgst með

PCS Backup fylgist með stöðu afritunar og gerir vart við sig ef afrit mistekst eða eitthvað er ekki eins og það á að vera.

Gögnin haldast hjá þér

Afritin eru vistuð í SharePoint hjá þínu fyrirtæki. Þú heldur stjórn á gögnunum í þínu eigin Microsoft 365 umhverfi.

Endurheimt eftir þörfum

Endurheimtu aðeins gagnagrunninn, WordPress-skrárnar eða allan vefinn eftir því hvað hefur farið úrskeiðis.

Öruggt restore-ferli

Áður en endurheimt hefst er núverandi staða tryggð með nýju öryggisafriti og afritið sem á að nota er sannreynt.

Tilbúinn að tryggja WordPress-vefinn?

Veldu leyfistíma og fjölda WordPress-vefja og byrjaðu með PCS Backup. Ef þú vilt aðstoð við uppsetningu, SharePoint-tengingu eða ert með fleiri vefi getum við hjálpað þér að koma lausninni í gang.

Segðu okkur frá þörfunum og við förum yfir hvernig PCS getur aðstoðað.